23.1.2009 | 23:11
Djöfulsins ógeð
Og dónaskapur með meiru að geta látið þessi orð úr munni sínum. Ég get ekki sagt annað. Ógeð.
Lilja.
X.
|
„Ekki farin að finna til með honum ennþá“ |
| Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
26.10.2008 | 00:33
Ég hef það notalegt
Á laugardagskvöldi, uppi í rúmi með nýja ritgerðarsafn hans David Sedaris, When You are engulfed in flames.
Skrítni stelpurnar eru í Morgunblaðinu í dag, laugardag. Endilega kíkið á það. Einnig bendi á öllum að gerast aðdáendur okkar á Facebook, síðan að skoða nýja myndasafnið eftir hann Hörð Ellert. Við sköpuðum eins konar draumaheim í Laugarskarði þennan dag.
Lilja.
X.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 16:32
Já, eitt í viðbót.
Nýjasti afrakstur okkar stelpna úr Weird Girls hefur fengið að líta dagsins ljós. Það er myndband við nýjustu smáskífu hljómsveitarinnar Ghostigital.
Ekki amarlegt! Meiri upplýsingar um gerð myndbandsins og þeirra sem að aðstoðuðu við þar hér.
Lilja.
X.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 16:26
Ég reyni.
Að koma þessu í skilning hjá sjálfri mér hvað er í raun að gerast, ég veit ekki hvort að ég sé að koma upp um mig sem fávísa unga konu með því að segja þetta, en ég get það ekki að vissu leiti.
Ég fylgist með fréttunum, les þær af áhuga og horfi á, hlustaði á ávarp forsætisráðherra og blaðamannafund íslensku ríkistjórnarinnar. Ég Jafnvel geng svo langt, fyrir mig, að fylgjast með fjármálaþættinum Markaðurinn. Ég skil hann tæplega, en hann kemur því í skilning hjá mér t.d. fjárhæðirnar sem er verið að tefla hérna.
Það sem ég virðist ekki skilja, þó, er hvernig þetta athafnaðist allt. Hvernig í ósköpunum gátu bankarnir allt í einu, sem að áttu að vera svo traustir, verið komnir í svona himin háar skuldir að þeir ráða ekki eitt né neitt við þær. Ég er í fyrsta skipti að heyra orð notuð í fjölmiðlum, t.d. þjóðnýttur og þjóðargjaldþrot, frá því að ég barasta, man eftir mér.
Annað sem að lætur mig hálfpartinn má höfuðverk er að hugsa um allan þennan pening, sem við skuldum nú og fólk er búið að missa og virðist halda áfram að missa. Er hvert fer hann? Hverjum skuldum við? Hvað verður af honum? Hvernig fengum við hann? Síðast en ekki síst, það er talað um að staðan sé svona óörugg víðs vegar um heiminn, en hvar byrjaði þetta, hver var dropinn sem að fyllti mælinn?
Endilega kommentið ef þið hafið áhuga á, ég vil vita hvað er í gangi en virðist ekki alveg hafa næg tök og skilning á því.
Lilja.
X.
|
Mjög óvinveitt aðgerð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.10.2008 | 09:51
Ein ótrúlega spennt.
2 dagar í næstu Weird Girls upptökur, ég get sagt að ég er vægast sagt að deyja úr spenningi. Allt er að koma heim og saman núna. Sápukúluvél og regnhlífar glærar eru komnar í höfn. Eina sem gæti mögulega farið úrskeiðis núna er veðrið, en það er hægt að leika sér að því og redda. Ég tek með mér teppi á upptökustað til að farast ekki úr kuldanum sem er að skella á okkur landsmenn þessa fallegu haustdaga. :)

Lilja.
X.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.9.2008 | 20:13
Mikið er þetta sorglegt.
Auðvelda leiðin er oft á endanum sú erfiðari. Þetta sýnir það svo sannarlega, á hrikalega dramatískan hátt sem kostaði mannslíf og mun vonandi ekki kosta fleiri.
Lilja.
X.
|
13 þúsund kínversk börn hafa veikst af þurrmjólk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2008 | 19:08
Ég kveð sumarið
Á morgun, þegar að ég kveð síðustu vinkonu mína sem að er að flýja land til að stunda nám fyrir utan landssteinana.

1. Organ Market in Weird Girls costumes, 21. júní., 2. Organ Market in Weird Girls costumes, 21. júní., 3. Organ Market in Weird Girls costumes, 21. júní., 4. Organ Market in Weird Girls costumes, 21. júní.
Lilja.
X.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2008 | 20:28
Múú
Þegar ég fjárfesti í pro reikninga á myndasíðunni Flickr voru þau svo væn að gefa mér 10 stykki míníkort frá prentverksmiðjunni Moo! Þau eru algjört æði, eilítið minni en ég bjóst við, en hey, þau heita nú míníkort. Fékk þau heim til mín í dag, allt svo sætt og flott og frábært, ég sat og ú-aði á a-aði í heilar 5 mínútur, yfir litlum kortum með myndum á sem ég hafði séð áður, oft. Haha.





Svo sæææt!
Lilja.
X.
P.S. Hvenær byrjar svo krotiklúbburinn Krot? ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.9.2008 | 21:18
Háskóli Íslands.
Á mig alla þessa dagana, að sökum þess hefur færslum hingað verulega minnkað. Það mun þó vonandi breytast þegar að ég hef komið mér í góða rútínu og endurheimt mátt í líkama minn sem þjónar nú sem burðardýr fyrir Gleitman og Moore. Gífurlega þungar bækur, þessar sem ég þarf að hafa með mér alla daga. Ótrúlegt.
Nú tekur við Introduction to the Practice of Statistics. Æ karamba, tölur hafa aldrei verið mín sterka hlið.
Lilja.
X.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2008 | 09:40
Snúin aftur heim.
Frá París. Með harðsperrur, tvenna háhælaða skó, hatt og tvo kjóla, auk góðgætis úr H&M og Zöru. Já, ég er mjög vanaföst, og París er dýr. Ferðin var þó yndisleg, ég arkaði upp á aðra hæð Eifeel turnsins, 700 tröppur. Upp og niður. Fór líka upp á topp, en hann tók ég í lyftu, takk fyrir. Skoðaði aragrúa af listaverkum af alls konar sort. Mona Lisa leit út eins og hún hefði dottið í þurrkara hún var svo lítil, en kannski var það því ég var svo langt í burtu, u.þ.b. 10 metra frá stykkinu.




Sú síðasta er útsýnið frá Hótelinu okkar, æði. Myndir er að finna hérna, og þá meina ég hellingur af þeim.
Lilja.
X.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)



atlifannar
raudka
tinnabessa
