9.10.2008 | 16:26
Ég reyni.
Að koma þessu í skilning hjá sjálfri mér hvað er í raun að gerast, ég veit ekki hvort að ég sé að koma upp um mig sem fávísa unga konu með því að segja þetta, en ég get það ekki að vissu leiti.
Ég fylgist með fréttunum, les þær af áhuga og horfi á, hlustaði á ávarp forsætisráðherra og blaðamannafund íslensku ríkistjórnarinnar. Ég Jafnvel geng svo langt, fyrir mig, að fylgjast með fjármálaþættinum Markaðurinn. Ég skil hann tæplega, en hann kemur því í skilning hjá mér t.d. fjárhæðirnar sem er verið að tefla hérna.
Það sem ég virðist ekki skilja, þó, er hvernig þetta athafnaðist allt. Hvernig í ósköpunum gátu bankarnir allt í einu, sem að áttu að vera svo traustir, verið komnir í svona himin háar skuldir að þeir ráða ekki eitt né neitt við þær. Ég er í fyrsta skipti að heyra orð notuð í fjölmiðlum, t.d. þjóðnýttur og þjóðargjaldþrot, frá því að ég barasta, man eftir mér.
Annað sem að lætur mig hálfpartinn má höfuðverk er að hugsa um allan þennan pening, sem við skuldum nú og fólk er búið að missa og virðist halda áfram að missa. Er hvert fer hann? Hverjum skuldum við? Hvað verður af honum? Hvernig fengum við hann? Síðast en ekki síst, það er talað um að staðan sé svona óörugg víðs vegar um heiminn, en hvar byrjaði þetta, hver var dropinn sem að fyllti mælinn?
Endilega kommentið ef þið hafið áhuga á, ég vil vita hvað er í gangi en virðist ekki alveg hafa næg tök og skilning á því.
Lilja.
X.
|
Mjög óvinveitt aðgerð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


atlifannar
raudka
tinnabessa

Athugasemdir
Gaurar sem eiga seðlabanka dæla út peningum í samfélagið í formi lána. Allir virðast vera að græða og kaupa og kaupa. Síðan eru lánin kölluð inn og þá hrynur allt og enginn á efni til að borga lánin.
Í raun afar einfalt. síðan kaupa þessir gaurar upp alla samkeppnisaðila á niðursprengdu verði og standa uppi með enn meiri eignir. Þetta hefur gerst oft í mannkynssögunni og er að gerast aftur núna... en mbl.is mun ekki útskýra það svona!
í augum almennra fjölmiðla gerðist kreppan bara af því að kreppan gerðist, einhverjir lánuðu og mikið og allt virtist hrynja fyrir slysni... ææ, og fyrst allt hrundi þá hrundi allt!
(þú heyrir mikið talað um að þessi íslensku fyrirtæki séu í kreppu út af kreppunni.. af hverju byrjar kreppa? hvert "fara" allt í einu allir peningar eða verða einskis virði?
Guðjón Heiðar Valgarðsson, 9.10.2008 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.